uNdRaLaNdId fimmtudagur, september 14, 2006Einu ári seinna og reyndar 5 dögum, þá hef ég loksins komið því í verk að gera mér myndasíðu.... Slóðin er flókin en ég bendi fólki á að smella mér bara í feivorits:http://www.rafnem.hi.is/~kom1 Nú er bara að smella á og skoða..... posted by Karen on 9/14/2006 föstudagur, september 09, 2005Eftir langa íhugun, miklar pælingar og enn meiri vangaveltur hef ég komist að þeirri sorglegu niðurstöðu að ég hef ekki tíma í að gera undrið að þeim stað sem hann á skilið og var lofað. Sumarið var alltof stutt til að gera allt það sem að mig langaði að gera, meðal annars "vera ógeðslega góð í heimasíðugerð". Þannig að ég hef ákveðið að hætta, en þó ekki að fullu. Því að í stað undursins mun koma myndasíða með nokkrum vel völdum myndum teknum með besta rebal -XT í heimi. Búin að sanka að mér nokkrum skemmtilegum gígabætum af myndum í sumar og eiga sumar þeirra vel skilið að fá að njóta sín fyrir augum almennings, þó einkum fyrir áhugasama um ljósmyndun og alla hina sem að hafa gaman af myndum%&$0!! Hvenær hin nýja myndasíða verður til er ? en það verður þó vonandi innan nokkurra vikna. Þarf að redda mér STÓRU heimasvæði á rafnem.hi.is þar sem hin væntanlega síða mun vera híst að hætti rafmagnsnörda. Svo að hér er komið að leiðarlokum, eftir allnokkrun tíma. Veit að sumir eiga eftir að kvarta, aðrir eiga eftir að gráta en ég held þó að flestum sé bara hreinlega sama. Ég hinsvegar kveð með söknuði enda verður að viðurkennast að það eru ekki margir staðir eins og undrið, en hver veit hvað framtíðin ber í fórum sér, kannski mun uNdRaLaNdId rísa aftur upp frá dauðum þegar námi er lokið og tími gefst til að gera hluti 100% en ekki bara 40%,kann það nebbla ekki!! Svo endaði hin heilaga ritning. Í nafni guðs föðurs, sonar og heilgas anda, Amen.posted by Karen on 9/09/2005 laugardagur, júlí 09, 2005Það boðar ekki gott þegar manni langar að blogga en það kemur bara ekert upp í hugann sem að er vert að blogga um! Gæti skrifað hvað ég er búin að vera að gera í tæpa tvo mánuði, sleppi því. Væri jafn leiðinlegt og að lesa tyrkneska orðabók fyrir heyrnalausa. Annars er ég búin að vera að grúska pínu í þessu heimsasíðu dóti. Finnst þetta mjög smellið og stefni á að verða ógeðslega góð í þessu. Það sem að eftir er að sumrinu verður bara stuð, brúðkaup næstu helgi hjá Krissu frænku minni. Það á eftir að verða einkar skemmtilegt, enda hef ég aldrei farið í brúðkaup. Er búin að byrgja mig upp af klútum, áætla fyrsta grenj rétt fyrir sex en þá er áætlaður komutími í kirkju. Helgin er svo fullkomnuð með einum vel sveittum rappara. En ætla enda þessa frekar snubóttu færslu á því að kasta kveðju á Sólina mína :) Lífið hérna heima er ekki samt án þín!posted by Karen on 7/09/2005 fimmtudagur, maí 19, 2005Sem nemandi í rafmagnsverkfræði og dóttir knnara þar, þá finnst mér alltaf gaman að sjá þegar menn eru að rausa um föður minn. Kallinn á að standa vel á sínu og gera létt próf. Það er spurnig hvort að ég sem dóttir eigi að segja honum þessi tíðindi, að nemum hans þyki prófin hans létt eða á ég bara að akta cool á gefa honum fimmuna fyrir að vera eini sanngjarni kennarinn í RogT!! Maður veit ekki alltaf hvoru megin er betra að halda sig en eitt er víst, fréttinar fær hann en á hvaða formi og hversu nákvæmar, það er spurning.posted by Karen on 5/19/2005 þriðjudagur, maí 10, 2005Við erum að tala um að það er EINN SÓLARHRINGUR í mestu sælu sem að fyrir finnst á jörðinni. Sumir segja: Of stór orð!! En ég segi: Jahh vinur minn, þá hefur þú aldrei klárað próf í verkfræði!!!!! Vegna mikilla fögnuða og áfengisinntaka á næstu dögum mun Undrið sennilega liggja niður um nokkurn tíma í viðbót. En óttist ei, ég lofaði betrumbótum og ég er ekki kona í það að svíkja digga lesendur mína, þannig að án gríns: Stay tuned!posted by Karen on 5/10/2005 sunnudagur, apríl 17, 2005Eitt sinn var lítil pæja sem að hét kæja. Hún var að drukkna í lærdóm en þó var hún ekki farin í hórdóm. Til að forða sér frá gleðistarfi ætlar hún að læra sem óður karfi. Þess vegna hryggir mig að segja: Undrið er farið í frí posted by Karen on 4/17/2005 mánudagur, apríl 11, 2005Ég þarf aldrei aftur að gera skýrslu í eðlisfræði aftur :)gleði-gleði-gleði!!! Síðasta djammið fyrir próf er afstaðið(fyrir utan ammælið hjá ollu minni). Aðalfundur VÍR var haldinn síðasta föstudag og hlutum ég og Hlín titilinn:
Gaman að því. Ný stjórn var kosin og verður spennandi að sjá hvernig henni tekst til, þar sem að sú gamala var kominn á stall sem að seint verður klifinn. En hver veit..... Of mikið áfengi innbyrt, enda allt í boði VÍR. Smellið kveld.
Vaknaði svo kl 10 temmilega þunn og var byrjuð að læra fyrir hádegi, geri aðrir betur :) verður að teljast til topp 10 afreka ársins 2005!!posted by Karen on 4/11/2005 sunnudagur, apríl 03, 2005Afskaplega ljúf og þæginleg helgi að baki. Skemmti mér vel á föstudaginn, Sóley takk fyrir hjálpina ;) Trúi því valla að það séu að koma próf aftur, hvernig í ósköpunum getur tíminn liðið sonna hratt, mætti halda að hann væri á einhverri hraðferð. Get þó huggað mig við að eiga miða á tónleika sumarsins-Franz Ferdinand.Bókuð skemmtun. En ætla að enda þessa stuttu en góðu færslu á orðum sem að ég rakst á inná einni af nörda síðum netsins. Kom eilítið bros á varir mínar þegar ég las hana og fattaði að ég er á réttum stað í lífinu, ekki amarleg uppgötvun það. "There are only 10 kinds of people in this world, those who understand binary and those who don't!"posted by Karen on 4/03/2005 föstudagur, apríl 01, 2005Fööööööösssssstudagur og já það er komin helgi. Beilaði á vísó sökum óvæntrar skemmtunar,uhmmm ;) Á morgun er bókað eitt stykki feit röð fyrir eitt stykki feitan miða á Franz Ferdinand, ætla sko að mæta snemma til að tryggja mér miða á þessa skyldu tónleika. Sá Vilhjálm bretaprins í dag, hvað er hann að gera á Íslandi ??posted by Karen on 4/01/2005 þriðjudagur, mars 29, 2005Það eina sem að heldur mér á lífi þessa dagana er ÞETTA. Þarna verð ég í sumar í yndislegar tvær vikur. Keyrandi um fagrar sveitir Tuskany héraðs og suður hluti Ítalíu kannaður betur í leiðinni. Capri eyjan verður heimsótt, sem og Napóli og fleirri skmmtilegar borgir. Hvernig er annað hægt en að fara í gott skap þegar hugsað er um sonna skemmtilega ferð :)posted by Karen on 3/29/2005 mánudagur, mars 21, 2005Lífið í verkfræðinni er heldur grátt, þá meina ég ekki að það gangi eitthvað illa heldur bara að það er nákvæmlega ekkert að gerast annað en lærerí alla daga og allar helgar. Tók mér reyndar bessarleyfi og smellti mér í eina góða letihelgi, enda um að gera að hlaða batteríin fyrir komandi páskatörn. Gerðist svo djörf að skrópa í síðasta tíma á föstudaginn og smellti mér bara í smárann með kaupæði í augunum. Endaði náttla með fullar hendur af góðgæti. Pils, tveir bolir og einn stór strigi sem einmitt laugardagskveldið fór í að mála :) Eftir þessa skemmtilegu búðarferð var ég ennþá ekki fullmetttuð og smellti mér því í minn árlega geisladiksamarkaðs- leiðangur. Þar var ég sko ekki svikin og eignaðist nokkra góða í safnið: Oasis- Definitely Maybe, The Clash-London Calling, Embrace-The good will out, Hjálmar-Hljóðlega af stað og svo einn gamlan NME disk með skemmtilegri blöndu. Endaði svo stórskemmtilegan dag í skemmtilegu ammæli hjá ská frænda þar sem var borðað þrírétta og sungið undir skemmtilegu gítarspili. Laugardagurinn fór bara í almenna leti, leigði mér fyrstu seríuna af Friends og hafði gaman að. Sunnudagruinn fór í ammæli og át, ekki slæmt það. Og vegna ónægs lærdóms sit ég nú á hlöðunni og reyni að koma two´s complement tölum yfir á signed form og annað skemmtilegt. Ég sver það, ég held að ég sé farin að sjá heiminn í binary tölum, er það nokkuð svo sad? Sá fyrstu fluguna í gær og það þýðir ekkert annað en að vorið er að koma. Hver þarf einhverjar lóur til að boða sumarið. Lóan er úreltur vorboði, þar sem að hún hefur ekki fylgt eftir hækkun hita á jörðinni og gróðurhúsaáhrifum. Það hafa flugurnar hins vegar gert, enda er kominn 8 stiga hiti úti og í mínum bókum er það bara ágætasta veður. Verum cool og setjum x við fluguna.posted by Karen on 3/21/2005 sunnudagur, mars 13, 2005Árshátíð verkfræðinema var haldin á Hótel Selfoss fyrir viku síðan. Nokkrar ungar dömur skelltu sér þangað ásamt heilu föruneyti af strákum. Ferðin byrjaði á því að allir hittust í Heiðrúnu og var þar verslað slatti af áfengi. Svo hélt allur skarinn upp á leiðis á selfoss. Í bíl hjá bæ voru Hlín og Karen, og Siggi, Hjalti og Biggas. Leið gekk vel og svo þegar komið var á 12 Selfoss þá var auðvitað fyrsti bíllin sem að við mættum var vel bónaður gulu Toyota. Ekki vorum við vonsvikin með það :D Að sjálfsögðu var Hlín orðin svöng þegar við komum á staðinn svo að við skelltum okkur á Subway sem að var svo heppilega í sama húsi og hótelið. Svo hófst allt húllumhæið að gera sig til. Leið ekki á löngu þar til að áfengið var opnað og þar ber fyrst að nefna ískalt kampavín, sem Hlín helti svo skemmtilega niður í rúmið hjá Láras og Kristínu :) Strákarnir voru duglegir að koma í heimsókn enda þurftu þeir ekki nema hálf tíma til að gera sig til á meðan við vorum á hlaupum í þessa 3 tíma sem að við höfðum ;) Svo þegar makeuppið var til og hárið reddí þá gat maður nú loksins slappað af og fengið sér meira áfengi og ekki var það slæmt sem að kom næst. Kristín kom með Beilís,klaka og svo var smá kókómjólk blandað út í og jesuss pétur jóhannes hvað það var gott. Fékk nú samt ekki nema 1/3 af því sem að mér var gefið í glasið þar sem að mér tókst að hella niður á mig ekki einu sinni heldur tvisvar :) En Siggi kom og bjargaði mér með að hella duglega á sig líka, takk fyrir það Siggi kær ;) Jæja og svo kom nú að því skemmtilegasta en það var að koma sér í dressið flotta. Konan var búin að vera líka sonna helvíti dugleg og saumaði sér svakalegt dress sjálf. Svo var ég með flott armbandið sem að ég fékk frá uppáhalds gullkonunum mínum. Svo skellti maður sér að glænýja hæla og það skal ég nú segja er algjört met þar sem að gellan hefur ekki verið að hálum síðan í 7 bekk :) Svo þegar við vorum loksins allar komnar í dressin okkar, var tekið vel á því með myndavélarnar :) Það dugði sko ekki ein mynd af þessu fallegu stelpum ;) Svo var skundað niður í sal, umvafin fallegu strákunum okkar á 1.ári. Rosalega voru þeir miklir gæjar í jakkafötunum :D Hótel Selfoss er einkar fallegt hótel(enda hannaði vji rafmagnið :D) en ekki voru þeir nú alveg að standa sig í matnum. Fólk var ekki alveg sátt en hvað getur maður svo sem átt von á miklu þegar kokkarnir þurfa að matreiða rétti fyrir mörg hundruð manns! En það sem að bjargaði matnum alveg voru frábærir kynnar og mjög svo skemmtileg skemmtiatriði :) Við vorum náttla með besta atriðið þrátt fyrir smá tæknileg atriði en fast á hæla okkar komu strákarnir á 3.ári. Þvílíkur dans, ég veit ekki alveg hvort að maður átti að gráta eða hlæja ;) Eftir matinn flykktust allir upp á herbergi þar sem að partýið byrjaði fyrir alvöru takk fyrir takk. Upp á herberginu okkar tók svo við meira áfengi og var komið að hinni einu sönnu fullnægingu, piparmynta og beilís. Skulum bara segja að skotin hafi ekki verið fá ;) Og auðvitað gat konan ekki látið gítarinn í friði og tók frumsamið lag og tileinkaði það Maggý "týnda virkjanum" :) Strákarnir héldu gott partý þar sem að Einir og félagar heldu uppi góðri gítarstemmningu og að sjálfsögðu fengum við að vera með kúrekahattana þeirra :) Bleika bongan kom að góðum notum og voru ekki fáir sem fengu góðan hristing í mallann ;) Hvað varðar ballið sjálft þá fékk það aðeins að njóta mín í hálftíma, og því má um kenna að herbergispartýin vorum bara alltof helv*** skemmtileg. Það eina sem að ég “man” frá ballinu var “allir dansa kónga”. Mig minnir að það hafi verið rosa stuð þar ;) Þegar ballið var búið þá var ekki mikil orka í manni til að djamma mikið lengur, enda búið að vera langur dagur. Rétt náði að skríða upp á hótelherbergi og reka alla út, því að þar var Hlín næstum búin að drepa strákana með karate spörkum ;) Vöknuðum síðan eitur hress=mygluð og svinguðum okkar í bæinn. Gerði miklar væntingar til þessarar árshátíðar og ég er ekki fjærri því að hún hafi hreinlega staðið undir þeim öllum....jahh og bara gott betur :)posted by Karen on 3/13/2005 föstudagur, mars 04, 2005123 Selfoss here we come........posted by Karen on 3/04/2005 þriðjudagur, mars 01, 2005Held að ameríkanar séu alveg búnir að missa allt vit, allavega hvað varðar skemmtiefni í sjónvarpi. Lenti bara óvart inn á þátt sem heitir What a Looser og er sýndur á skjá einum. Allvega þá er sá þáttur næstum eins uppbyggður og Survivor nema sá er rekinn út, sem að er ekki að standa sig í að verða "mjór". Já ég lýg þessu ekki, í þættinum áðan voru þau öll látin vigta sig á risa vigt(sem hefði nótabene verið nóg undir hval) og það lið tapaði sem að var búið að missa fæst kíló :S. Eitt reyndar frekar spes, í öðru liðinu var kona sem að var 77 kíló, síðan hvenær hefur það talist til ofþyngdar?? Sérstaklega þegar hún var að keppa við fólk sem að var 150 kíló. Kannski er það einmittt plottið, náttla erfiðara fyrir hana að missa fleiri kíló en hin!! svo í endan verður hún orðin 40 kíló en ekki ennþá búin að missa jafn mikið og hinir!! Já þetta er ekki sanngjarnt finnst mér. Svooo má ekki gleyma hinum þættinum, en það er The Swan. Hann er alveg met, þar eru tvær "ljótar konur" valdar í hvern þátt og þær teknar í make over. Það felur í sér 20 lýtaaðgerðir, fitusog, tannaðgerðir, leysir fyrir augun og margt fleirra. Og það er nú bara brot að því besta, því að svo er valið á milli þeira í endann og sú fallegri valin til að taka þátt í keppninn The Swan sem að er einskonar fegurðarsamkeppni þeirra "mikilbreyttu". Pælið samt í því að vera sú sem að ekki er valin, bara sagt við þig sorry þú ert ennþá ekki nógu falleg, þó að þú sér búin að fara í milljón aðgerðir og grennast um helling!! Hversu illa van-gefið er það??posted by Karen on 3/01/2005 sunnudagur, febrúar 27, 2005Það er eitthvað við að sitja inni í rigningunni, heyri í henni brotna á þakglugganum og sjá dropana klessa á jörðina. Hvort sem að það er þessi svo kallaða hreinsun eða bara fílingurinn að vera í tjaldi, þá allaveg fíla ég það. Óskar í kveld, ætla að reyna að meika lengur en síðast, sem sagt lengra en fyrstu verðlaunin.......posted by Karen on 2/27/2005 föstudagur, febrúar 25, 2005Vá, að tala um að létta til. Sólin komin og það með stæl. Þokan vonandi alfarin... Akkurat vika í árshátið verkfræðinema á hótel Selfossi. Karelin verður með mér í herbergi og ætti sú mixtúra ekki að verða leiðinleg, enda tvær vel hressar konur þar á ferð. Gullkonur fóru í mjög svo skemmtilega sumarbústaðarferð um síðustu helgi. Sem formaður ferðanefndar og annað ammælisbarn ferðarinnar þá get ég fullyrt að þessi ferð var ekki síðri en sú sem að var farin að ári síðan :D Mættum á svæðið snemma og var strax byrjað að opna bjórinn. Leynigestirnir létu sig ekki vanta og gerðu innrás í heitapottinn okkar ;) Helgus og ich vorum búnar að kaupa glæsilegar kræsingar og mikið magna af áfengi(sem fékk að koma með í þetta skiptið). Margt var gert sér til dundurs, meðal annars singstar, pottapartý, upplesning á klámsögu, slúðrað, spilað og pakkar voru opnaðir :D Vil ég þakka gullkonum fyrir fullkomna ferð og ég vona svo sannarlega að þetta verði ekki sú síðasta :)posted by Karen on 2/25/2005 laugardagur, febrúar 19, 2005Hvað er betra en að vera með öllum vinkonum sínum á sama stað í heilan sólarhring?? Bústaðarferð gullkvenna hefst eftir hálftíma og tími til kominn að fara að taka sig til........posted by Karen on 2/19/2005 sunnudagur, febrúar 13, 2005Aldur er afstæður, mér líður ekkert eins og ég sé orðin eitthvað fullorðin. Hvenær ætli manni finnist maður vera jafn þroskaður og aldurinn segir til um?? Mér líður alveg eins og þegar ég var 16.ára gelgja nýbyrjuð í MH. Ælti manni eigi alltaf etir að líða þannig, spurning.... Skemmtilegar pælingar sem ekki spruttu upp að ástæðulausu. Átti ammæli á föstudaginn og varð tuttugu OGGG eins. Einkar skemmtilegur ammælisdagur, vaknaði við að familian kom inn syngjandi ammælissönginn kl 20 min yfir 7 :D pakkar og fleirra tilheyrandi fylgdi með. Svo þegar komið var í skólann þá tóka ekki verra við, því að krakkarnir sungu fyrir mig, ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Í fyrra skiptið á ganginum í vr2 og í seinna skiptið í Háskólabíó með alla áhorfendur Véla og iðnarar-hönnunarkeppninnar viðstadda. Einkar skemmtilegt hjá krökkunum,sérstaklega þar sem að ALLIR vissu eftir þetta að ég átti ammæli og fékk ég ófár ammæliskveðjur ;) Svo fór restin af deginum í ammælisstúss og endaði svo daginn með því að fara í ammæli til völu skvís, sem að átti ammæli 8.feb. Stuð ammæli, var samt best þegar vala tók KISS KISS. Það vita bara þeir sem voru þarna hvað það er og ég held "okkar allra vegna" að það sé betra að hafa það þannig :D Því miður fór ekki alveg eins og ávarkosið í stúdentaráðs kosningunum. Vaka vann þó kosningarnar með nokkrum mun. En þrátt fyrir það, náðu þau ekki að halda meirihluta í stjórn og verður því forvitinlegt að sjá hvernig samstarfið hjá hinum jöfnu fylkingum gengur. Annars verður vikan taumlaus gleði, próf í greiningu rása á föstudaginn og verður því vart litið upp úr skólabókunum :S en get þó huggað mig við það að vera að fara í bústaðarferð með da gels um næstu helgi :) það verður sko stuuuuuð!!!posted by Karen on 2/13/2005 fimmtudagur, febrúar 10, 2005Kosningavaka í kvöld á Hressó.......Hjálmar að spila,kveldið getur bara ekki klikkað. Krossum puttana og vonum bara það besta!!!!! gooooooooo Vakaposted by Karen on 2/10/2005 miðvikudagur, febrúar 09, 2005Jæja kæjapæja lasaríus er orðin hress, vikan fór samt öll í svefnlausar nætur og endalaust stuð. Þrátt fyri veikindin, dópaði ég mig bara upp og smellti mér í tvítugs ammæli til Betu. Einkar skemmtilegt boð, og fær hún tilnefningu í flokknum "Sterkasta innkoma ársins 2005". Eftir ammælið var að sjálfsögðu haldið niður í bæ og kveldið svo endað á Aktu, og taktu það svo. Dísa og Hallas fá bestu þakkir fyri góðar stundir í bílaröðinni, ekki amarlegt hössl þarna hjá okkur, strákurinn verður ekki samur eftir þetta ;) Fór með Eini niður í kosningamiðstöð Vöku í gær og var að hringja út í vini mín. Var samt að lenda í því að sumir sem að ég var búin að bóka atkvæði frá, var búið að hringja í, svo að ég náði bara nokkrum atkvæðum. En eins og Einir segir, eitthvað er betra en ekkert. Jahh kannski sagði hann þetta bara alls ekki en hey þetta er satt svo að..... Kosningarnar eru í dag og vil ég enn einu sinni minna fólk á að kjósa. Hvað mig varðar þá kaus ég manna fyrst kl 10 í morgun. Einn brandari sonna að lokum: Hvað gerði mínus helðslan þegar hún sá plús hleðsluna?? Svar: Hún auðvitað drógst að henni, dööö :Dposted by Karen on 2/09/2005 þriðjudagur, febrúar 01, 20057, 9, 13......djöfulsins kjaft****, ég er orðin veik. Hlaut að koma að þessu þar sem að minn betri helmingur er búinn að vera veikur núna næstum í viku. Ekki gaman að reyna að reikna stærðfræði veikur, en heimadæmin reiknast víst ekki að sjálfu sér, þau hlaðast bara upp og stefna í óendanlega mikla vitleysu. En þessi gaur er sko ekki vitlaus, heldur bráðgáfaður og auka þess ammælisbarn dagsins :D óska ég honum velfarnaðar og velkomnan á þrítugsaldurinn(ég kem þangað mjög fljótt :D). Einnig vil ég minna á að nú fara kostningarnar að nálgast í HÍ og glöggir menn ættu að vera búnir að átta sig á því að verkfræðinemar fara í aðalhlutverki í þessum kosningum, bæði hjá Vöku og Röskvu!! Það kemur væntanlega engum á óvart að ég er Vakandi megin í þessum kosningum, enda stórgott og vel treystandi fólk í sætum hjá Vakanda. Því hvet ég alla til að nýta sér sinna rétt til að kjósa. x-vaka(spurning um að fara að taka prósentur hvað varðar öfluga kynningu???)posted by Karen on 2/01/2005 föstudagur, janúar 28, 2005Uhmm komnin vika frá síðustu skrifum, hver vill rassskella mig núna ?? Mikið búið að ganga á í þessari viku sem að kannski skýrir bloggleysið að hluta til. Verkfræði er sko ekki létt fag *uppgötvun vikunnar* er búin að vera að læra stanslaust alla vikuna og alla helgina! Það sem að ég uppskar er að vera BARA rétt svo á áætlun en alveg tæplega það !!! Kúrsarnir á þesari önn eru einkar skemmtilegir og ber þar mest á greiningu rása og gatt(grundvallaratriði tölvutækni). Lenti í einkar vandræðalegu í fyrsta tímanum okkar í verklegri í gatt. Áttum að tengja saman ýmsar rásir, með viðnámum, spennugjafa, transistorum og fleirra skemmtilegu. Jæja konan þykist nú vera heldur klár í þessu enda af verkfræðifólki komin og sest bara í miðjun og byrjar að tengja. Allt gengur vel, viðnámin komin á sinna stað, jarðtenging klár og svo vantaði bara transistorinn. Lít ég í kringum mig og sé sonna stóran málmkassa og segi: Já þetta hlítur að vera transistorinn, og byrja að fitla eitthvað við hann. Svo í sama andartaki kemur kennarinn með 2 cm lítinn kubb með 3 vírum og réttir mér hann. Gjörðu svo vel hérna er transistorinn!! Kom þá í ljós að það sem að ég hélt að væri transistorinn var í raun spennugjafi sem að bara var þarna og tengdist æfingunni ekki neitt ;) Eftir þetta varð ég náttla að þola skot frá öllum, tók þeim vel enda ekkert að því að rugla sonna "líkum" hlutum saman :D Úr einu í annað, fékk í gær heimsókn frá minni ástkæru vinkonu og fyrrverandi köbenbúa Ölmu Jóhanesen. Heimsóknin var í raun dulbúin sem "fundur" þar sem að ræða átti um sumarbústaðarferð tussu og soramannaklúbbsins. Í staðin fór allt kveldið í singstar, systa var að fá playstation og keypti sér að sjálsfögðu singstar 1 og 2. Held að nágrannarnir hati mig enda tókum við Eternal flame 27 sinnum, enda staðráðnar í að fá singstar sem að við fengum svo að lokum :D hvað sumarbústaðarferðina varðar tók ég mig nú til sem formaður og ritari ferðanefndar og krassaði niður líkalega dagsetningu, nokkrar hugmyndir að bústöðum og svo var fundi slitið. Góður fundur, stuttur en góður :D Svo úr einu í allt annað. Einir vinur minn í rafmagninu( já Idolgaurinn) er að bjóða sig fram fyrir hönd Vöku í stúdentakosningunum. Hann er að bjóða sig fram í 2.sætið um Háskólafundinn. Þar sem að við erum eina sjálfstæðisfólið í grúbbunni okkar þá stöndum við að sjálfsögðu saman og fékk hann mig til að koma niður í höfuðstöðvar vöku og hringja í nokkra vini mína og tékka hvert þeirra atkvæði fari. Þetta er mjö spennandi þar sem að mig hefur alltaf langað að kynnast pólitíkinni soltið betur og núna gefst mér gott tækifæri á því. Hver veit nema maður bjóði sig fram á næsta ári.....óska vinum og vandamönnum góðrar helgi og sjálfri mér óska ég mér góðs gengis í lærdómi ;) enda fer helgin aðalega í eina skemmtilega eðlisfræðiskýrslu :)posted by Karen on 1/28/2005 föstudagur, janúar 21, 2005Ohhh þvílíkt letilíf!! bara ligg upp í rúmmi og horfi á O.C :D ekkert djamm í kveld = engin þynnka á morgun. Það er náttla bara bara tær snilld :) hlaðan verður mitt annað heimili um helgina sem er annars bara fínt, hvað er annars betra en að læra ?? En ætli maður leyfi sé nú ekki eitthvað skemmtilegt um kveldið, kanski bíó, kaffihús eða almenn leti bara! En bara sonan eitt að lokum, fyrir þá sem að kannski ekki vita það ennþá, þá var ég að fá nýjustu 8.þættina af The O.C. Þessir þættir eru náttla bara tær snilld og verð ég að viðurkenna að ég er soltið skotin í honum Seth :D ég meina gaurinn er í fullkomnum fötum, hlustar á eðal tónlist og les teiknimyndablöð, ég meina, hvað þarf maður meir ??posted by Karen on 1/21/2005 sunnudagur, janúar 16, 2005Í dag er 20ogggggg1 hún Dísa Skvísa lingggkona mín. Takk fyrir mjög svo skemmtilegt ammælisboð í gær og megir þú eiga góðan ammælisdag :D Fyrsta vísó á föstudaginn í KB banka afstaðin og var hún fín. Hef ákveðið að hætta að mæta í vísó nema bara í þær sem að mér þykir áhugaverðar. Rökin fyrir þessu er ekki svo gott gengi í lærdómnum. Maður verður víst að fara að taka þessum ands**** alvarlega ef maður ætlar að útskrifast. Mikið er ég ánægð með bloggið sem ég bjó til fyrir vinkonurnar. Við gull skvísurnar ætlum sko að byrja árið með glans :) Aldrei þessu vant gerði ég engin áramótaheit þó að ég hafi næstum staðið við öll fjögur á síðasta ári. En ætli árið í ár fari ekki að mestu í að læra svo að áramótaheitið gæti verið að reyna að gera alltaf eitthvað skemmtilegt á hverjum degi eða jafnvel eitthvað leiðinlegt?? Gæti alveg verið góð spæling.....Í dag fór ég í tvær búðir að leita mér af skrifborði en öll borðin sem mér langaði í voru búin! Sko er strax byrjuð að virkja áramótaheitið. Á morgun verður það vonandi eitthvað skemmtilegt :)posted by Karen on 1/16/2005 mánudagur, janúar 10, 2005Akureyri er áhugaverður bær. Vil ekki segja að fólkið í honum sé skrítið en það er hreinlega ekki eins og við hin, það er alveg klárt mál. Nú í síðustu skiptin mín þangað hef ég alltaf lent í eftirfarandi: Borðað yfir mig, fengið stalker, verið næstum keyrð niður af hringrúntinum margumtalaða og séð nakinn mann hlaupa upp gilið. Uhmm reyndar er þetta síðasta bara óskhyggja í mér en allt annað er satt. Furðulegt en satt. Lenti í fyndnu sms spjalli við einhvern vin frænda míns. Hann vildi ólmur fá mig með þeim í bæinn og tjáði mér að hann væri leynilegur aðdáandi minn. Já og ekki batnaði ferðin. Daginn eftir var ég næstum keyrð niður af minnsta rúnti á Íslandi. Þurfti að beita snöggum hreyfingum til að rétt henda mér undan rauðlakkaðri, stífbónaðri og vel skyggðri Impressu. Hefði verið sorglegt ef að ég hefði dáið eftir að hafa lent undir pressu, og það skyggðri. Ekki skemmtilegur dauðdagi það!! En komast þó heil á höldnu heim í RVK og þar bíður mín sko betra líf. Skólinn að byrja á morgun og verð ég að viðurkenna að tilhlökkunin er rosaleg. Hlakka mest til að byrja í kúrs sem heitir greining rása. Loksins fær maður að komast í eitthvað rafmagnsdót, ekki bara þurr grunnur sem gæti drepið mann úr leiðindum. Ein pæling sonna að lokum, var í ammæli hjá afa mínum um helgina og varð hann sjötugur. Þetta væri kannski ekki frásögufærandi nema fyrir þær sakir að deginum á eftir ammælinu hans hefði Elvis Presley orðið sjötugur líka. Ætli afi min sé líkur Presley?? Báðir eru þeir söngelskir, hávaxnir og skemmtilegir kallar....Gæti verið að afi minn væri leynilegur tvíburabróðir Kóngsins???posted by Karen on 1/10/2005 miðvikudagur, janúar 05, 2005Jæja 3 próf staðin og 2 eftir. Annað pottþétt staðið en hitt pottþétt fallið. Skemmtileg blanda það!! Er farin yfir heiðina miklu og kem ekki heim aftur í bráð.Bless í bili.posted by Karen on 1/05/2005 sunnudagur, janúar 02, 2005Árið 2005 er mætt og byrjar líka sonna þrusu vel. Áramótin voru að vanda glæsileg, maturinn var ljúffengur. Kalkúnninn klikkar aldrei og var gaman að smakka svartfuglinn hjá pabba :D maður er svo nýjungagjarn. 2004 endaði með singstar og 2005 byrjaði með singstar. Vá ég held að ég hafi sett met í að taka lög í singstar ;) var að prufa leikinn sonna eiginlega í fyrsta skiptið almennilega og þvílík byrjun. Hver andstæðingurinn tapaði á fætur öðrum og var almennt á orði allra að ég hlyti að hafa sérstaka singstarHÆFILEIKA :D úr familiboðinu fór ég svo í JÁ annað singstarpartý(mætti halda að ég hafi þefað þau uppi). Þar tók svo við hörkukeppni sem stóð langt fram á nótt. Vaknaði svo á nýársdag með heldur lemstruð raddbönd, greinilegt að maður þarf að fara að taka raddæfingar fyrir sonna stórar keppnir. Röddin er ekki vön sonna gríðarlegri ofnotkun ;)Svo var náttla ekki hægt að slá slöku við á nýjársdag. Smelltum okkur í skemmtilega bæjarferð sem endaði ekki fyrr en morgna tók :D glæsilegur árangur það, með tilliti til þess að konana hefur ekki djammað í rúman einn mánuð. Svakalegt, já ég veit en hey skólinn er að fara að byrja aftur. OG menn menn menn hvað ég ætla að vera dugleg í fyrstu vísó ;) Spilakevld á eftir, vonum að sigurinn verði jafn sætur og í singstar hér um árið :Dposted by Karen on 1/02/2005 föstudagur, desember 31, 2004Jæja enn eitt árið búið, og maður situr eftir og spyr sig hvert það hafi farið? Búin að prufa fjórar mismunandi vinnur, fara til london og kannski það merkilegasta búin að klára fyrstu önnina í rafmagns og tölvunarverkfræði sem verður að teljast til strór afreka. Margt annað minna skýtur líka upp kollinum þegar rifja skal upp liðið ár. Til dæmis þegar ég komst að því að ég væri ekki með neina endajaxla og slippi þar að leiðum við endajaxlatöku, yndisleg ferð í sumó,hlöðulærdómurinn mikli sem kannski var ekki sá skemmtilegasti en félagsskapurinn var alveg gjörsamlega að redda geðheilsunni, frábær bústaðarferð í tilefni tvítugsafmælis kæpæ(snilld jafnvel þó að sumir hafi gleymt sumu :D). Já ekki slæmt ár það en einhvern veginn held ég að næsta ár verði jafnvel ennþá skmemtilegra og gæfuríkara-á maður ekki alltaf að vera bjartsýnn á framtíðina? Óska ég öllum gleðilegs nýjs árs og vona svo sannarlega að það verði öllum gæfuríkt og spennandi. Göngum hljóðlega af stað en hlaupum svo inn í framtíðina!!posted by Karen on 12/31/2004 miðvikudagur, desember 29, 2004Eitt down, fjögur to go :Dposted by Karen on 12/29/2004 þriðjudagur, desember 28, 2004Áramótin á næsta leiti og mikið hlakkar mig til. Erum alltaf hjá vinafólki okkar, þar sem eru notabene ekkert nema verkfræðikallar og reyndar ein ung verkfræðiskvísa :D get ekki beðið eftir hörkudjammi þar sem það síðasta fór heldur betur í vaskinn, útaf ónefndum aðilum. Er búin að lofa mér útum allan bæ, svo ætli ég þurfi ekki bara að klóna mig eða jafnvel fá mér bara vængi, jahh eða bara skikkju :D Fór á ansi skemmtileg mynd með henni Ollu bollu í gær. Fórum í kringlubíó á The Incredible, og mikið rosalega var hún skemmtileg. Ótrúlega vel gerð, skemmtilegur söguþráður, geðveikar persónur og bara drep fyndin. Þar var reyndar einni aðalpersónunni ráðlagt að fá sér ekki skikkju svo ætli vængir verði ekki fyrir valinu hjá mér fyrir þessi áramót!! Er ekki enn þá búin að fá neitt að vita um gengi mitt í þessum blessuðu prófum sem er kannski bara gott, þar sem manni gekk nú ekkert super dúper. Allavega komin með 3 einingar hjá honum joner kallinum en þær voru nú reyndar gefins ;) Svo að lokum, er einhver þarna úti sem veit um partý ?? Allt að stefna í það að við verðum að tjalda á einhverjari umferðareyju og halda partý þar!! Nú er bara að láta orðið berast: HEY, veist þú um partý?posted by Karen on 12/28/2004 mánudagur, desember 27, 2004Hó hó til allra sem hó eiga skilið. Jólin voru gleðileg að vanda og verður erfitt fyrir þau að toppa sig á næsta ári. Búið að troða sig út eins og svín sem er að fara fyrir slátrarann, ekki gott mál það. Eitt sem að ég geri alltaf um jólin og það er að snúa sólarhringnum við. Finnst ég ekki geta farið að sofa fyrr en klukkan er allavega orðin 3 og vakna ekki fyrr en stóri vísirinn er kominn langt fram hjá 12. Ætli allir geri þetta? Er maður kannski að verðlauna sig eftir að hafa vaknað alla daga kl hálf átta í vetur, hver veit! hjá mér er allavega kominn leyfilegur svefntími, svo samviskan leyfir mér að fara hrein í rúmið.posted by Karen on 12/27/2004 fimmtudagur, desember 23, 2004Þorlákur mættur á svæðið. Í bakgrunninum óma Frank Sinatra og Bing Crosby- jóladiskurinn kominn í, hreint á rúminu, jólatréið skreytt og hangikjöt hjá ömmu á eftir. Jólin eru komin.Gleðileg jól og gott nýtt ár posted by Karen on 12/23/2004 sunnudagur, desember 19, 2004Á morgun......loksins, það hlaut að koma að þessu. Orkan alveg að verða búin en ætli maður þrauki það ekki til morguns: System.out.println("Java er æðisleg") System.out....posted by Karen on 12/19/2004 föstudagur, desember 17, 2004Jæja þetta er að hafast, bara eitt próf eftir!! búið að vera frekar sonna mikið hell. Hef aldrei á minni ævi lært jafn mikið. Er búin að vera á hlöðunni frá 8-22 alla daga, núna í bráðum mánuð. Sá sem sagði að háskólinn væri full vinna, var ekki að grínast. Er búið að ganga sæmilega í þessum prófum, vonast til að ná öllu en kæmi mér ekkert á óvart ef ég myndi nú detta niður(falla) í einu. Bara að vona það besta, taka pollíönnu á þetta. Jólin eftir akkúrat viku, ekki búin að kaupa neinar jólagjafir en var sem betur fer búin að vara fólk við. Jólagjafirnar í ár verða rúðusköfur, keyptar hjá Shell kl 23 á þorláksmessu :Dposted by Karen on 12/17/2004 fimmtudagur, desember 09, 2004Ég er buguð af álaginu, vona að ég komi heil úr þessari vitleysu. Ef ekki þá var gaman að kynnast ykkur......posted by Karen on 12/09/2004 laugardagur, desember 04, 2004Sniff sniff, munaði bara einu fok** prósenti að Einir kæmist áfram :( íslenska þjóðin er að gera sín stærstu mistök til þessa, þar með talið að senda Angel í júróvisíon!!! ekki gott mál það.....posted by Karen on 12/04/2004 fimmtudagur, desember 02, 2004Óóóóóóó helga nóttttt........ómar um allt húsið. Smákökulyktin svífur um og við falleg kertaljós sátum við og pökkuðum inn jólapökkum! Já jólin eru komin í Hvassaleitið. Snemma segja sumir en hvað um það. Ætla bara að leyfa þeim að spila með mig, enda eru þau nú bara einu sinni á ári :D Idol á morgun og er Einarinn okkar að fara að keppa. Klárlega besti söngvarinn í rafmagninu fyrr og síðar. Ætlum öll að hvetja okkar mann til sigurs og honum til heiðurs ætlum við öll að heita DOLLI á msn á morgun ;) ÁFRAM Einir.... :Dposted by Karen on 12/02/2004 þriðjudagur, nóvember 30, 2004Its official........hver sem er má berja mig í hausinn og það 3 sinnum!! ekkert blogg í meira en viku, það er persónulegt met held ég barasta. Of margt búið að gerast þessa vikuna.Fór í leikhús í boði Tuma á Eldað með elvis. Mættir voru, Karen, Hlín, Einir Idol og Alma í Nylon, stemmer :D vísó, of mikið áfengi en strákrnir okkar stóðu fyrir sínu og redduðu kveldinu. Allir hreinlega of handsome i jakkafötunum sínum. Doubbleup' ammæli á laugardeginum, Hlínsan mín og litla systa báðar árinu eldri og fá þær eina stóra slummu í tilefni dagsins :) sunnudagurinn fór í ammæli, jólaboð og lærerí í VR2 til klukkan rúmlega eitt um kveldið, skemmtilegt?? mánudagurinn var kannski einna merkilegastur, því að þá gerðust undur og stórmerki. Karen Óska ljóska yfirgaf place-ið og Karen Brownsuggggga varð að veruleika. Við erum að tala um það að stelpan er orðin dökkhærð og það alveg bara þó nokkuð mikið :D vona bara að allir eigi eftir að þekkja mig, lenti í því í dag að segja HÆ við fólk og fá ekkert svar.....jahh kannski þarf ég bara sterkari linsur! Sökum mikils próflesturs næsta mánuðinn, þá mum bloggið fara í smá lægð, en ég mun passa mig að gefa samt ekki færi aftur á að láta lemmja mig í hausinn.......það er alveg víst!!!posted by Karen on 11/30/2004 mánudagur, nóvember 22, 2004Hvort er verra að vera kalt á tánum eða höndunum.......bara smá pæling?? Helgin búin og aldrei þessu vant LÆRÐI ég alla helv*** helgina og var hún þar af leiðandi no fun. Við erum að tala um að ég var bóksatflega gróin við stólinn í tölvuverinu á annari hæð í VR2. Sátum þar, ég og Hlínsan bæði á laugardeginum og sunnudeginum í alltof marga klukkutíma en segja vitrir menn að þetta eigi aðeins eftir að versna....STUÐ!! Ef það væri ekki fyrir góðverk nokkura eldri nemenda, þá held ég að ég væri ennþá að skrifa þessa skýrslu. Mun hafa þessi þrjú ungmenni í guðatölu það sem eftir er :D En eins og venjulega var helgin nú ekki algjör steypa, því að stelpan lét drauminn sinn rætast og fór á THE BEACH BOYS í gær :D get hreinlega ekki lýst ánægju minni með þessa tónleika, söng með öllum lögunum og dansaði eins og madman. Jafnvel þó að þetta sé náttla ekki upprunalega hljómsveitin, þá var minn maður ennþá á staðnum og söng eins og engill. Bara snilld að heyra hann taka "Dont Worry Baby", stal alveg hjartanu í mér :D Gaman að sjá hversu breiður aldursskalinn var. Sá mömmur, pabba, ömmur, afa, börn, unglinga og meira að segja konu með staf!! Lenti í einu frekar skondnu samt. Við hliðna á mér alla tónleikana sat maður sem var vel kominn á fimmtugsaldurinn. Var hann greinilega alveg hardcore aðdánadi og söng hástöfum með öllum lögunum eins og ég. Hann hafði greinilega boðið allri familiunni með, konu og tveim tvítugum dætrum sínum. Svo þegar tónleikarnir standa sem hæst og við erum öll staðin upp og byrjuð að dansa, þá tekur minn maður í höndina á mér og tekur mig í eina létta sveiflu :D greinilegt að honum líkaði vel við dansinn hjá mér :D stelpurnar hans horfðu á þetta með skelfingu og ég veit ekki eiginlega hvort var fyndnara, svipurinn á þeim eða danshæfileikar manninns :D Allavega brilliant tónleikar, gef þeim alveg hiklaust 10!! vill þakka Rex kærlega fyrir æðislega skemmtun, þú veist að þú ert uppáhalds tónleikapartnerinn minn :Dposted by Karen on 11/22/2004 fimmtudagur, nóvember 18, 2004Dagurinn í gær var dagur hláturs og this is why: Dagurinn byrjaði bara eins og allir aðrir dagar, ég og hlínsan mín vorum bara í skolen og ákveðum að fara í bakó. Aldrei þessu vant ákveðum við að fara niður tröppurnar hægra megin í vr2(sem sagt ekki þessar fjölförnu). Ég labba niður í mestu rólegheitum og hlínsan er rétt fyrir aftan mig, svo allt í einu heyri ég þvílík læti og lít fyrir aftan mig á þá blasir við mér ein sú allra fyndnasta sjón sem ég hef séð. Því að eftir endilöngum stiganum liggur hlín greyið,næstum hengd í töskunni sinni. Við erum að tala um það að stelpan flaug beint á hausinn niður allavega 10 tröppur og lá svo alveg stíf, hrædd um að vera með heilahristing. Angistarsvipurinn á henni var óborganlega fyndinn :D svo á meðan ég var að berjast við að halda hlátrinum inni í mér, var ég að reyna að spyrja hvort það væri ekki allt í lagi með hana. Svo um leið og hún ríkur á fætur og við horfumst í augu, þá bara Bahhhhhhhhhhhhhahahahahahah deyjum við úr hlátri :D við erum að tala um að ég stóð valla í fæturna af hlátri, þarna lágum við í gólfinu, grátandi saman og ég að reyna að stynja út úr mér: Ég hélt að þú værir dáin.....Þú varst eins og krossfest :D Já svo náttla fór allur skóladagurinn í að endurlifa atvikið og svo náttla gleðin hjá undirritaðri í að segja ÖLLUM frá atvikinu, við litla kátínu hjá MR.H :D Svo um kveldið fór ég í kökuboð til ollu bollu og hitti allar gellurnar mínar loksins aftur. Mikið rosalega var gaman að sjá þær allar, valamodello bara komin aftur heim frá spain, Siggalaug skriðin upp úr læknabókunum, og svo loksins hún Spuna mín, back in bisssss :D OG svo aftur tók hláturinn völdin.....fórum nebbla í leik þar sem sumir misstu sig hreinlega í "ÉG SKAL VINNA"(engin nöfn nefnd:D) ég og dísí vorum saman í liði og að SJÁLFSÖGÐU unnum við....en ekki hvað :D Já þetta var hláturmildur dagur og ef ekki bara vottar fyrir eilitlum harðsperum í maga þessa stundina!!posted by Karen on 11/18/2004 þriðjudagur, nóvember 16, 2004Er að spá í að hætta í rafmagnsverkfræði, fara frekar í bygginga og sérhæfa mig í gatnarmálum. Þetta gengur bara EKKI lengur, tók mig einn hel*** klukkutíma að komast heim úr skólanum áðan! Okey það var náttla snjór og læti en það er samt ekki eðlilegt að vera sonna lengi að fara þessa 7 kílómetra. Hvernig á Miklabrautin eins og hún er nú bein að geta valdið allri þessari umferð sem um hana fer allan daginn? Eitthvað verður að breytast!!! systir mín er einmitt alltaf að segja við mig að ég eigi að hanna gatnarkerfi, segir að ég hafi margt fram á að færa í þeim málum :D Samkvæmt teljaranum "marg um talaða", þá mun heimsóknafjöldinn á þessari síðu bráðum ná á annað þúsund!!! skemmtilegt væri ef gestur nr.2000 myndi kvitta fyrir sig í commentaboxinu :Dposted by Karen on 11/16/2004 mánudagur, nóvember 15, 2004Vá hvernig er hægt að vera sonna latur. Hélt bara að þetta væri eitthvað sonna skeið en þetta ætlar að stefna í að vera komið til að vera. Hugsunin um það hvernig líf mitt verður næsta mánuð skelfir mig meira en nokkuð hefur gert áður. Skóli, læra,sofa,éta,sofa,læra,skóli,læra,læra,læra,læra,sofa,skóli,éta,deyja,læra,skóli, en ekki endilega samt í þessari röð!!! Ef ég væri ekki með sonna æðislegum krökkum sem gera lærdóminn aðeins bærilegri væri ég löngu flogin. Legg ekki einu sinni í það að hugsa um jólin, þau eru eitt af því fjölmarga sem verður bara að sitja á hakanum. Ætla nú samt að leyfa mér að fara í vísó næsta föstudag, enda verður ekki ómerkilegri staður en ALCAN skoðaður. Fyrir þá örfáa sem ekki ekki vita það, þá vann ég þar í sumar, svo að þetta ætti að vera ansi fróðleg ferð :D Ennnnnnn hvað öllu þessi líður þá get ég ekki annað en komist í oggguponkulítið jólaskap af því að horfa út. Þvílík fegurð, köld en falleg engu að síður.posted by Karen on 11/15/2004 laugardagur, nóvember 13, 2004HEY sister go sister so.......ógeðslega var gaman í gær. Fáránleikarnir miklu stóðu sko undir væntingum og rúmlega það. Hittumst fyrst heima hjá Hlínsu og dressuðu strákarnir sig upp í nunnuoutfittið, sem var by the way yyyyyyndisleg sjón :D ég og hlín fengum að vera með nunnuklútinn á hausnum, bara sonna upp á að vera í stíl við liðið ....vorum náttla flottustu klappstýrurnar :D Skunduðum svo öll niður í löggusalinn þar sem leikarnir voru og dísus hvað það var mikill stemmer þar. Leikarnir hófust og þrátt fyrir góðan metnað og en betra lið, þá gekk okkur ekkert alltof vel. Töpuðum 4 þrautum og unnum 2, sem verður bara að teljast ágætt miða við nýnema!!! En að lokum stóðu nú samt VÍR liðar uppi sem sigurvegarar, og við erum að tala um rúst púst sko, 1.SÆTIÐ, 3.SÆTIÐ og besti búningurinn.Eftir úrslitin lá leiðin niður í bæ og jahh ekki orð um það meir..... Til lukku allir vírliðar nær og fjær :D Ein snilld að lokum: Þær spúluðu mig eins og fisk-Davíð Oddsson um sturtuferð sína með hjúkkunum á Landsanum.posted by Karen on 11/13/2004 fimmtudagur, nóvember 11, 2004Yasser Arafat var verkfræðingur......afhverju kemur það mér ekki á óvart ?posted by Karen on 11/11/2004 miðvikudagur, nóvember 10, 2004Þeir sem þekkja mig vel, vita að ég á það til að gefa fólki skemmtileg gælunöfn/nicknames. Dæmi um slík eru: Sólsí, olla bolla,spuna og mitt uppáhald, alma the penis of ******. Svo um daginn tók ég upp á því að byrja að kalla hann Bjarna vin minn í rafmagninu BJ. Karen eins og hún er nú klár stelpa er ekki alveg jafn sleip í enskunni(það vita nú allir sem við mig hafa talað). Var búin að kalla greyið drenginn þetta í allavega mánuð þangað til að hann spurði mig einn daginn hvort ég vissi hvað þetta þýddi. Ég náttla hafði ekki guðumd um að BJ stæði fyrir eitthvað en svo er víst raunin. Því að BJ stendur nebbla fyrir BLOWJOB í ensku!!!!! þetta var ég búin að kalla greyið strákinn innan um alla vini okkar og jafnvel í miðri kennslustund. En hvað get ég af þessu gert, hef greinilega ekki horft jafn mikið á bláar myndir og hann :D Svo var ég að horfa á kassann um daginn og lendi þá líka á þessum skemmtilega þætti, When sex goes wrong. Eitt viðtalið var einmitt við stelpu sem segir eitthvað á þessa leið: Yeahhhh soo I was in a taxi and I was giving my boyfriend a BJ......ég var alveg what a BJ!!!!!! og svo bara MÚHAHAHAHAHAHAHA!!!!! hef sjaldan hlegið jafn mikið, bæði vegna þess hvað ég var vitlaus að fatta þetta ekki og GREYIÐ Bjarni að láta kalla sig MUNNMÖK allan daginn :Dposted by Karen on 11/10/2004 þriðjudagur, nóvember 09, 2004Munaði minnstu að hver sem er mætti rassskella mig en ákvað að blogga bara í staðinn. Þessa dagana snýst allt hjá okkur krökkunum um Fáránleikana svo kölluðu. Fyrir þá sem ekki eru í verkfræði gæti þetta hljómað soltið fáránlegt en er í rauninni ekki svooooo fáránlegt ;) Þeir snúast um að skorirnar innan verkfræðinnar keppast í því að vera sem fáránlegastar. Hvert skor sendir 4 lið og ætlum við nýnemarnir að vera eitt af þessum 4 liðum. Hugmyndin var sú að senda tvö lið en vegna gríðarlegrar löngunar til að vinna þá ætlum við að senda okkar sterkustu menn og verður afgangurinn bara sendur í eitt stykki háværasta stuðningslið sem sögur fara af !!! Hvað við verðum er 100% leyndarmál og það fær enginn að vita fyrr en á keppninni sjálfri en ég get lofað góðuuuu outfitti ;)undanfarin tvö ár hefur vélin tekið þetta en núna í ár verða sko breyttir tímar. Við ætlum að landa bikarnum fagra í hús og gera vír-liða stolta, eitthvað sem tókst næstum því í fyrra(lentum í öðru sæti). Helgin sem leið var mín fyrsta 100% edrú helgi síðan skólinn byrjaði, og var hún þar að leiðum ekki upp á sitt besta ;) ótrúlegt hvað föstudags stemmningin verður engin ef maður er ekki að fara í vísó!!! Úr væli í alvöruna, Þórólfur bara búinn að segja af sér og læti. Hvað er að gerast með Ísland? erum við að breytast í Bandaríkin hvað varðar spillingu og græðgi...líst ekkert á hvernig þessi pólítík er að þróast hér á landi, hún stefnir í óendanlegt rugl! en best finnst mér þó allar þessar heilsíðu auglýsingar frá öllum olíufélögum landsis, þar sem þau heita bótum og biðjast fyrigefningar á öllu saman-þvílík hræsni-posted by Karen on 11/09/2004 miðvikudagur, nóvember 03, 2004Víiiii greiningarprófið búið og mér gekk ekki illa, aldrei þessu vant :) engin tía samt en geri mér allavega vonir um að ná!! Stefnan tekin á tölvufræði á allan dag og svo bara nett tjill í kveld :) væri alveg til í að kíkja kannski bara í bíó(einhver sem nennir að koma með mér?). Bush tók þetta. Kom ekki á óvart. Vona að hann geri eitthvað að viti maðurinn en það verður að teljast frekar hæpið miðað við hans fyrri afrek! hlakka svo til helgarinnar, hún verður tileinkuð mínum ekki gleymdu en elskulegu vinkonum :) þær eru ekki sáttar hvað ég eyði miklum tíma með verkfræðifólkinu og verður þetta því sonna einskonar rebondhelgi. Stelpur I´am all your´s ;)posted by Karen on 11/03/2004 þriðjudagur, nóvember 02, 2004Nákvæmlega tólf tímar í dómsdag. Dagurinn búinn að vera massífur þar að leiðandi. Er að breytast í eina af þessum pokarottum sem lifa á bókasfaninu í vr2. Sat þar inni frá 8 í morgun til rúmlega 10 í kveld. Held meira að segja að ég sé farin að lykta eins og bók...jahh eða frekar eins og gamall hlutur! spurning með eitt stykki sturtu ;) En næsta spurning er: hver vinnur í BNA í nótt? Ég þori að veðja að Bush tekur þetta, þó að ég haldi alls ekki með honum frekar en Kerry. Ég meina kommon, maðurinn er sitjandi forseti og á bróðir sem er ríkisstjóri í Flórída sem vill svo til að er eitt af stærstu ríkjunum í BNA !!! Hvernig er annað hægt en að vinna þegar maður lumar á sonna djö**** góðum tropum á hendi ??posted by Karen on 11/02/2004 sunnudagur, október 31, 2004Ótrúlegt hvernig allt hellist yfir mann sonna í einu! vaknaði upp við ljótan draum rétt í þessu, að prófin eru á næsta horni. Og þegar maður er ekki búinn að vera að standa sig sem best, eiginlega frekar illa, þá fer stressið á fullt. En það þýðir ekki að væla og nú er bara að reyna að synda á móti straumnum. Tók þá skynsamlegu ákvörðun um að hætta í vinnunni minni og var að klára síðustu vaktina mín í dag. Vona að það, ásamt heilmiklu læreríi skili mér upp úr þessu rugli! Annað sem verður að víkja er stanslaust djamm á manni allar helgar. En þó....maður verðu nú víst að gera sér eitthvað til skemmtunar, því að námsefnið er svo þurrt að maður myndi þorna upp ef áfengið yrði tekið líka í burtu ;) fórum að þessu sinni í vísindaferð í Marel, stelpan reyndar að fara þanngað í 2.skiptið. Marel er ansi áhugavert fyrirtæki og ekki skemmir fyrir að maður er búinn að fylgjast með því eiginlega frá byrjun. Skemmtilegt að sjá hvað þeir eru búnir að vaxa mikið. Skoðuðum við allt fyrirtækið og fengum góðar veitingar. Hörður var reyndar ekki á staðnum en það hefði verið gaman að hitta hann, enda ekki ógáfaður maður þar á ferð. Svo var skundað niður á Pravda og skolað í sig nokkrum bjórum. Endaði svo bara með hlínsu baby, frekar vel hífaðri á mama´s tacos. Heppin ég að það var byrjað að renna af mér um tíu leitið og skemmti ég mér konunglega yfir ofurdrykkju vinkonu minnar(ekki illa meint elskan mín ;)). Var svo rosalega dugleg og var mætt upp í skóla fyrir 11 í gærmorgun og var þar til 7 um kveldið, já þýðir víst ekkert annað en harkan sex. Stefnir svo allt í ansi skemmtilegt lærdómskveld......skemmtilegt, kannski nokkrum orðum ofaukið!!posted by Karen on 10/31/2004 fimmtudagur, október 28, 2004Já ef stelpan er ekki bara snillingur....og nú mega vitrir menn giska hver ástæða yfirlýsingarinnar er!!!! verðlaun eru í boði fyrir rétt svar. eitt hint:snildin tengist bloggútliti konunnar og ekki orð um það meir!posted by Karen on 10/28/2004 |
|
maystar design
|||